Ég vil þakka ykkur öllum hjartanlega fyrir að gera þennan draum, Sólskinsdrenginn, að veruleika. Ekki síst vil ég þakka forsetafrúnni, Dorrit Moussaieff, sem er verndari verkefnisins og veitti okkur ómetanlega leiðsögn. Þá vil ég þakka öllum þeim velunnurum sem trúðu á þetta verkefni frá upphafi og hjálpuðu við að leggja grunninn að því. Öllum þeim sem tóku þátt með því að leggja til sérfræðikunnáttu sína og gerðu allt sem þeir gátu til að hjálpa okkur vil ég einnig þakka innilega. Og síðast en ekki síst þakka ég stuðningsaðilunum, meðal annarra þeim framsýnu fyrirtækjum sem eiga með okkur hugsjónina um að breiða út vitund um einhverfu. Þið gerðuð okkur mögulegt að láta drauminn rætast og verða að raunveruleika. Stuðningur ykkar hefur verið mér mikil hvatning og andagift.

Það er einlæg ósk mín og þrá að þessi kvikmynd skipti máli fyrir samfélag einhverfra og fjölskyldur þeirra. Veröldin er sannarlega yndisleg, þegar fólk tekur höndum saman við að bæta hag þeirra sem á hjálp þurfa að halda. Ég hef þá staðföstu trú að ef við höldum áfram að vinna saman að þessari hugsjón af sömu seiglu getum við fært sólskinið inn í líf allra í kringum okkur. Saman getum við ljáð þessum krökkum rödd og sjálfstæði, þannig að þeir geti dafnað og skinið skært.

Með innilegri kveðju,

Margrét Dagmar Ericsdóttir

 


Sérstakar Þakkir

Apple Búðin - AFA - Ari Kristinnsson - Æja - Bláa Lónið - Björk Guðmundsdóttir - Einar Már Guðmundsson - Davíð og Golíat ehf. - Félagsmálaráðuneytið - Gunnar Eyjólfsson - Heilbrigðisráðuneytið - Hilmir Snær Guðnason - Ívar Páll Jónsson - ISNIC - Kaupþing - Landsbanki Íslands - Merkjalist - Nordica Hotel - Ragnheiður Guðmundsdóttir - Scott Anderson - Sigur Rós - Sveinn M Sveinsson - Tómas Þorvaldsson -
Trausti Einarsson
- Valdís Óskarsdóttir