Þuríður Einarsdóttir lauk BFA gráðu í kvikmyndaklippingum við
Dramatiska Institutet í Stokkhólmi. Áður hafði hún numið kvikmyndafræði
við Stockholms Universitet og lokið BA prófi í félags- og stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands. Hún hefur starfað við klippingu kvikmynda, myndbanda,
sérstakra videoverka, stuttmynda og margs konar sjónvarpsefnis í Svíþjóð
og á Íslandi í tæpa tvo áratugi.
Á meðal verkefna hennar á undanförnum árum eru auk Sólskinsdrengsins
meðal annars heimildamyndin „Vigdís forseti“ sem Steinunn Sigurðardóttir
eikstýrði og leikna heimildamyndin „Jón Sigurðsson. Maður og foringi“ í
eikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Þá má nefna sjónvarpsmyndina „Þá yrði
líklega farin af mér feimnin“, og heimildamyndirnar „Martha Graham 100 år“,
„Íslensk vatna- og sjóskrímsli“, „Safnari af hjartans einlægni – Sverrir Sigurðsson“
o.fl. Einnig má nefna stuttmyndirnar „Siggi Valli á mótorhjóli“ og „Räveld“.
|