Frontier Filmworks var stofnað árið 2006 af Margréti Dagmar Ericsdóttur. Frontier Filmworks er íslenskt kvikmyndaframleiðslufyrirtæki sem hefur að markmiði að framleiða myndir sem hafa áhrif á samfélagið til hins betra. Sólskinsdrengurinn er fyrsta verkefnið af þessum toga en margar aðrar hugmyndir að myndum liggja fyrir.

Fyrir alla þá sem vinna hjá Frontier Filmworks lýkur vinnunni svo sannarlega ekki með frumsýningu myndarinnar. Það þarf marga til að bera áfram þann boðskap sem áhrifaríkar og þýðingarmiklar kvikmyndir geta túlkað. Fyrir okkur hjá Frontier Filmworks þýðir það að gefa af tíma okkar til að auka vitund, safna fjármagni og vinna að verkefnum sem auka von um betra samfélag.







Klikk Productions var stofnað árið 2002 af Kristínu Ólafsdóttur. Klikk Production sérhæfir sig í framleiðslu
á list í einu eða öðru formi.

Meðal mynda sem fyrirtækið hefur framleitt eru heimildamyndirnar How Do You Like Iceland? (2003)
og Love Is in the Air (2004). Einnig hinar margverðlaunuðu kvikmyndir Börn (2006) og Foreldrar (2007)
og framleiðsla á uppsetningu Vesturports á Rómeó og Júlíu (2004) í Young Vic Theatre í Bretlandi.

nánar