Hvernig lýsir einhverfa sér ?
Einhverfa er ekki fötlun sem sést utan á fólki, en hún birtist í öllum samskiptum og hegðun og hefur mikil áhrif á líf þeirra sem bera hana.
Tvær manneskjur með einhverfu geta verið mjög ólíkar, því misjafnt er í hvaða mynd einkennin birtast og hve mikla skerðingu þau hafa í för með sér. Það sem einkennin eiga oftast sameiginlegt er að birtast á þremur sviðum:
- Geta til félagslegra samskipta er oftast skert. Þetta getur meðal annars lýst sér í því að einstaklingurinn forðast augnsamband við annað fólk og myndar ekki þau tengsl við aðra sem eðlileg eru miðað við aldur.
- Mál, tjáning og leikur þróast ekki eins og eðlilegt má teljast. Sumir læra aldrei að tala þrátt fyrir fullkomna heyrn. Aðrir eru altalandi en nota málið á sérstæðan hátt, endurtaka ef til vill sömu setningarnar aftur og aftur eða tala um sjálfa sig í þriðju persónu. Margir eiga erfitt með að hefja eða halda uppi samræðum. Hjá börnum er leikur oft einhæfur og skortir þau getu til að leika þykjustuleiki og hlutverkaleiki (t.d. mömmuleik) á sama hátt og börn á svipuðum aldri gera.
- Sérkennileg áráttukennd hegðun er áberandi hjá mörgum. Hún getur birst í ýmsum myndum. Allt frá því að vera einfaldar síendurteknar hreyfingar, til dæmis að rugga sér fram og aftur eða veifa höndum, upp í flókin áhugamál sem einskorðast við mjög þröng viðfangsefni, svo sem tímaáætlanir strætisvagna.
Forsenda þess að íhlutun hefjist snemma er að einhverfa greinist snemma. Snemmtæk íhlutun vísar í stuttu máli til aðgerða sem er gripið til snemma í lífi barns til u.þ.b. sex ára aldurs. Snemmtæk íhlutun leggur áherslu á markvissar aðgerðir til að hægt sé að hafa sem mest áhrif á þroskaframvindu barna eins snemma á lífsleiðinni og unnt er.
Rannsóknir og þróun þekkingar undanfarna áratugi hafa sýnt fram á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar. Gera þarf ráð fyrir heildstæðri þjónustu og markvissum aðgerðum þar sem unnið er eftir viðurkenndum aðferðum í kennslu og þjálfun barna með einhverfurófsröskun.
Heimildir: Umsjónarfélag einhverfra - The National Autistic Society - Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins |