Margrét Dagmar Ericsdóttir

Margrét Dagmar Ericsdóttir er viðskiptafræðingur með MBA gráðu
frá Florida Institute of Technology. Margrét hefur um árabil gegnt
stjórnunarstöðum hjá öflugum fyrirtækjum.

Árið 1997 fæddist yngsti sonur Margrétar, Keli. Fljótlega kom í ljós
að ekki var allt með felldu en Keli var greindur mjög einhverfur
þegar hann var á fjórða ári. Þessar snöggu og afgerandi breytingar
á högum fjölskyldunnar urðu til þess að Margrét tók þá ákvörðun að
láta starfsframa sinn í bið og beita kröftum sínum að umönnun Kela.
Margrét hefur verið óþreytandi í að leita nýrra leiða og meðferða til
að betrumbæta líf sonar síns. Þrautseigja hennar og staðfesta í að
hjálpa Kela og fjölskyldum einhverfra barna var kveikjan að hugmyndinni
um að búa til heimildamynd um einhverfu.   

Margrét stofnaði kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Frontier Filmworks
árið 2006 en fyrirtækið hefur að markmiði að framleiða kvikmyndir
sem hafa áhrif á samfélagið til hins betra. Fyrsta mynd Frontier Filmwork
byggir á reynslu Margrétar sem móður einhverfs barns. Margrét leitaði
uppi fremstu sérfræðinga  í einhverfu og fjölskyldur einhverfra barna.

Heimildamyndin Sólskinsdrengurinn er fyrsta verkefnið af þessum toga en
hugmyndir að mörgum myndum liggja fyrir.