Sólskinsdrengurinn...
Ímyndaðu þér að þú gætir ekki haft samband við umheiminn. Þú gætir ekki tjáð líðan þína – ófær um að koma löngunum þínum, draumum og þrám til skila, þótt þær væru ekki minni en hjá öðru fólki. Ímyndaðu þér að þú reiddir þig á aðstoð annarra við einföldustu daglegu verk, eins og að klæða þig og borða. Ímyndaðu þér að þú værir fastur inni í skel.


Heimildamyndin Sólskinsdrengurinn í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar
segir sögu Margrétar, sem hefur reynt allt til að koma syni sínum til hjálpar.
Keli er ellefu ára og með hæsta stig einhverfu – mamma hans veit ekki einu
sinni hvort hann skilur íslensku, hvað þá önnur tungumál. Þótt Margrét eygi ekki
mikla von fyrir hönd Kela brenna á henni margar spurningar um það dularfulla og
flókna ástand sem einhverfa er.


Hún heldur til Bandaríkjanna, þar sem hún kynnis
vísindamönnum á sviði einhverfu og meðferðar
við henni og foreldrum einhverfra barna sem eiga
sama baráttumál og hún; að brjóta niður múrinn milli
barnann og umheimsins. Þessi vegferð verður lengri
og afdrifaríkar en hún ætlaði í upphafi.
Í ferðinni kveiknar von um að hægt sé að hjálpa syni
hennar meira en hún hafði áður talið.

Ef til vill er hægt að brjóta niður einhverfumúrinn og
kynnast einstaklingnum sjálfum?