David G. Amaral

David er prófessor í geðsjúkdóma- og hegðunarfræðum. Hann stjórnar rannsóknum hjá  M.I.N.D. stofnuninni. (Medical Investigation of Neurodevelopmental Disorders).
Simon Baron-Cohen

Simon er prófessor við Cambridge háskóla í Bretlandi. Hann er jafnframt stjórnandi  Autism Research Centre.
Collins fjölskyldan

Jason og Lori Collins hittust í gagnfræðiskóla og hafa verið gift í 15 ár. Þau eiga fimm börn og eru þrjú af þeim einhverf.
David Crowe

David Crowe segir að líf hans, sem faðir einhverfs drengs, hafi verið ferðalag í gegnum allan tilfinningaskalann; allt frá vantrú, sorg, viðurkenningu, skilnings, trúfestu og loks gleði.
Taylor Crowe

Taylor
var með eðlilegan þroska fram að þriggja ára aldri en þá missti hann snögglega málið og var stuttu seinna greindur með einhverfu. Hann lýsir einhverfunni sem ,,óþægindum".
Geraldine Dawson

Geraldine Dawson er prófessor í sálfræði og geðsjúkdómafræðum. Hún tók nýverið við stöðu sem yfirmaður rannsókna hjá  Autism Speaks.
Temple Grandin

Temple Grandin er prófessor í búfjárfræðum og er án vafa einn þekktasti núlifandi einstaklingur með einhverfu.
Lisa Helt

Lisa Helt er móðir einhverfs drengs og vinnur sem sjálfboðaliði hjá HALO meðferðarstöðinni.
Portia Iversen

Portia Iversen
hefur verið talsmaður aukinna rannsókna á einhverfu síðan sonur hennar, Dov, var greindur árið 1994.
Linda Lange

Linda er móðir einhverfrar stúlku, Madison. Árið 2004 stofnaði Linda HALO – (Helping Autism through Learning and Outreach).
Catherine Lord

Catherine Lord er klínískur sálfræðingur sem sérhæfir sig í rannsóknum börnum og fullorðnum á einhverfurófinu.
Becky and Abe Meulemans

Becky og Abe Meulemans eiga þrjá drengi sem eru allir einhverfir.
Joseph E. Morrow

Joseph E. Morrow er sálfræðingur og annar stofnandi ABC, Inc. sem er skóli sem sérhæfir sig í heildstæðri atferlisþjálfun fyrir börn á einhverfurófinu.
Soma Mukhopadhyay

Soma Mukhopadhyay þróaði svo kallaða Rapid Prompting Method til að kenna einhverfum syni sínum, Tito.
Tito Mukhopadhyay

Tito var greindur með einhverfu þegar hann var þriggja ára. Tito sem er orðinn tvítugur er bæði ljóðskáld og rithöfundur. Hann hefur gefið út fjórar bækur.
Sally Rogers

Sally Rogers sérhæfir sig í rannsóknum í einhverfu og öðrum þroskaröskunum sem og í meðferðum fyrir börn á einhverfurófinu og fjölskyldur þeirra.
Brenda J. Terzich

Brenda J. Terzich er með meistarpróf í sálfræði og hefur yfir 20 ára reynslu á sviði heildstæðrar atferlisþjálfunar sem meðferðarúrræði einstaklinga á einhverfurófinu. Hún er annar stofnanda  ABC, Inc. skólans.

Jonathan Shestack

Jonathan Shestack er faðir einhverfs drengs og virtur kvikmyndaframleiðandi í Hollywood.
Candace Smith

Candace Smith starfaði sem kennari um árabil. Candace er eiginkona Vernon Smith, Nóbelsverðlaunahafa. Frá 2003 hefur hún starfað með Vernon við alþjóðlega stofnun í rannsóknum á tilraunahagfræði sem Vernon er í forsvari fyrir.
Vernon L. Smith

Vernon Smith hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 2002. Vernon greindi sjálfan sig með mörg einkenni Asperger heilkennisins.
Thorkil Sonne

Thorkil Sonne er faðir einhverfs drengs og stofnandi Specialisterne sem er danskt hugbúnaðarfyrirtæki. Hjá fyrirtækinu starfa 50 sérfræðinga -75% þeirra eru með greiningu á einhverfurófinu.